Hvammur

Húsið var reist 1925, að hluta úr eldra húsi frá Hvítárósi. Það er nú fallið. Á jörðinni er nú Vesturlandsdeild Skógræktar ríkisins.

Úr Jarðabók Borgarfjarðar- og Mýrasýslu

Hvammur

Jarðardýrleiki xx c# að meðreiknuðu fjögra hudnraða engi, sem jörðin á í Andakíl.

Eigandinn að x c# eru börn Sigvats Þorleifssonar hjer heima.

Ábúandi faðir eigenda.

Landskuld hjer af er engin, því eigendur og þeirra fjárhaldsmaður halda. Var áður lx álnir, og betalaðist í öllum reitíngi.

Leigukúgildi voru iii. Leigur guldust í því, sem til var.

Kvaðir öngvar.

Eigandi að vi c# lxxx álnum er Ragnheiður Árnadóttir að Brekku í Norðurárdal.

Ábúandinn áðurnefndur Sigvatur Þorleifsson.

Landskuld xl álnir. Betalast í dauðum flytjandi landaurum heima á jörðunni.

Leigukúgildi ii. Leigur betalast í smjöri, heim til eiganda.

Kvöð engin.

Eigandinn að iii c# xl álnum er Kristín Guðmundsdóttir að Arnarholti í Stafholtstúngum.

Ábúandi sami.

Landskyld xx álnir. Betalast í gildum landaurum heima á jörðunni.

Leigukúgildi i. leigur gjaldast í smjöri, heim til eiganda.

Kvöð engin.

Kvikfjenaður ábúanda v kýr, i kvíga að fyrsta kálfi, i veturgömul, ii kálfar, xxxiii ær með lömbum, i lamblaus, xii sauðir tvævetrir og eldri, xvii veturgamlir, iiii lambgimbrar, ii hestar, iii hross, i foli þrevetur, i fyl.

Fóðrast kann v kýr, xxx ær, xvi lömb, ii hestar. Þeir hestar sem eru fleiri, þá er þeim um vetur hagi fenginn annarstaðar.

Skógur til kolgjörðar og eldiviðar nægur. Raftviður enginn.

Torfrista og stúnga lítt nýtandi.

Sortulýng ut proxime supra.

Silúngsveiðivon í Skoradalsvatni ut supra.

Engi á jörðin framundan Ytri Skeljabrekkulandi, sunnan Andakílsá í takmörkuðum reit, þar sem heitir Hvammsengi.

Túninu granda jarðföll og skriður.

Hætt er skógi, túnum og haga fyrir snjóflóðum.

————————————

 


Barni Jónsson – Ingveldur Sverrisdóttir – Hvammi í Skorradal 1918-1946.
Bjarni Jónsson (1875-1963) var fæddur í Stritlu (Dalsmynni) í Biskupstungum, sonur hjónanna Jóns Bjarnasonar ( 1844-1926) og Kristrúnar Sæmundsdóttur frá Helludal ( 1840-1895), bænda þar. Bjarni lærði trésmíði og vann við smíðar víða um land. Kona Bjarna var Ingveldur Sverrisdóttkir (1866-1938) dóttir Sverris Magnússonar (1836-1914) og Elsu Dórotheu Einarsdóttur (1839-1905) sem bjuggu á Ytri-Sólheimum í Mýrdal.

Þau Bjarni og Ingveldur reistu bú í Reykjavík. Þar vann Bjarni að iðn sinni og byggði þar mörg hús. Eitt þeirra var íbúðarhús þeirra hjóna að Njálsgötu 37 sem Bjarni byggði árið 1904. Var þetta fyrsta hús sem reis við Njálsgötuna og stendur það enn, árið 2014. Í þessu húsi bjuggu þau Bjarni og Ingveldur til ársins 1918 og hafði Bjarni verkstæði sitt í skúr á lóðinni.
Hjá Bjarna og Ingveldi bjuggu tengdafaðir Bjarna og faðir hans. Þeir Sverrir Magnússon og Jón Bjarnason. Báðir ekkjumenn.

Árið 1918 seldu þau Bjarni og Ingveldur hús sitt við Njálsgötuna og fluttu að Hvammi í Skorradal. Þau höfðu átt jörðina í einhvern tíma og Ingveldur mun hafa kunnað því betur að búa í sveit en í þéttbýli. Bjarni mun hins vegar alltaf hafa haft meiri áhuga á trésmíði en búskap. Hann vann mjög að smíðum eftir að hann kom að Hvammi. Með þeim hjónum fluttu Jón, faðir Bjarna, sem og börnin þau Jón, Sverrir og Kristrún en Sverrir, faðir Ingveldar var þá fallinn frá. Þetta fólk bjó síðan í Hvammi.

Þegar fjölskyldan flutti upp í Skorradal voru samgöngur nokkuð frumstæðar. Ákveðið var að flytja búslóðina upp í Hvalfjörð með báti. Fólkið átti að vera í bátnum en farangurinn á pramma, sem dreginn væri. Það var því áríðandi að fá gott veður til fararinnar og eftir því var beðið þessa vordaga 1918. Fyrsti áfanginn var að Hrafneyri í Hvalfirði.

Sumarið 1917 hafði Bjarna áskotnast hrútlamb og rollu átti hann, sem ættuð var sunnan af Miðnesi, jafnan kölluð Sunnanhyrna. Þessi bústofn hafði verið hafður í skúrnum á lóðinni við Njálsgötuna og var að sjálfsögðu tekinn með í Skorradalinn.

Gunnar Jónsson í Króki, barnabarn Bjarna og Ingveldar segir svo frá flutningi fjölskyldunnar í Hvamm og hefur orðið hér eftir:

,,Í maí mánuði 1918 rann brottfarardagurinn loks upp og haldið var af stað á bátnum frá Reykjavík í góðu veðri. Farið var fyrir Kjalarnes og inn Hvalfjörðinn að Hrafnabjörgum. Þar var gott að leggja að, sandfjara og aðdjúpt. Var nú farangrinum skipað upp og búist til áframhaldandi ferðar. Þangað til móts við hópinn kom bóndi úr Skorradal, Ólafur Þorsteinsson á Vatnsenda. Bjarni afi hafði ráðið hann til þess að flytja þau heim að Hvammi. Hann skyldi koma með hross til reiðar og undir trúss og flytja þau ásamt því nauðsynlegasta af farangrinum upp í dalinn. Gengið var frá því sem útaf stóð til geymslu þar í fjörunni, eitthvað af því var flutt upp að Geitabergi í Svínadal og geymt þar um veturinn. Þar á meðal voru forláta stofuhúsgögn klædd með rauðu plussi. Þessi húsgögn hafa sennilega verið vönduð smíði því þau eru enn til nærri öld síðar og í góðu standi eftir því sem ég best veit.

Víkjum nú aftur í fjöruna hjá Hrafnabjörgum þennan vordag í maí. Þaðan var haldið af stað. Maður sér fyrir sér þessa lest ferðamanna. Ólafur fór fyrir með trússahestana, afi og amma og langafi Jón voru ríðandi og á eftir skokkuðu strákarnir Jón og Sverrir þá 11 og 10 ára gamlir, ásamt hrútnum og Sunnanhyrnu. Vafalaust hafa þeir verið reiddir af og til en þeir voru frískir og léttir á fæti. Áfram þokuðust ferðalangarnir til fyrirheitna landsins, upp hallana og yfir í Svínadal síðan um Geldingadraga að Skorradalsvatni á móts við Hvamm.

Yfir vatnið var farið á báti en búslóðin var sótt seinna. Sverrir sagði mér að hann hafi verið orðinn þreyttur þegar þangað kom og að þar sem hann beið á bakkanum eftir bátnum hafi hann undrast hve stórt þetta vatn væri. Það var á þoka eða mistur þannig að ekki sást báturinn fyrr en hann var nærri kominn. Loks heyrðist þó áraglamur úti í þokunni og báturinn birtist. Áfram var haldið að flytja fjölskylduna og færur hennar yfir vatnið.

Hvað tók svo við í Hvammi? Ingvar og fjölskylda hans, sem búið höfðu á jörðinni voru í bæjarhúsunum en fluttu fljótlega burtu. Fjölskyldan varð þess vegna að setjast að í fjárhúsunum þegar þau komu fyrstu nóttina að minnsta kosti. Bústofninn var í fyrstu ekki stór. Sunnanhyrna, hrúturinn, kúgildi 13 ær og ein kú. Víst hefur lífið ekki verið þægilegt, enginn hestur til flutninga við aðdrætti. Eina farartækið var pokavagn, sem afi hafði notað í Reykjavík til þess að flytja á smíðavið. Sá var notaður til þess að sækja varning á Seleyri. Einn dró vagninn hinir ýttu á eftir. Fyrsti hesturinn sem þau eignuðust var gamall pósthestur, keyptur frá Hamraendum. Það var því aðkallandi að stækka búið og þau settu á öll lömb um haustið, hrútlömb voru alin upp sem sauðir, gimbrarnar sem ær.

Bæjarhúsin í Hvammi voru ekki merkileg þannig að Bjarni varð fljótlega að byggja yfir fjölskylduna. Hann keypti hús til niðurrifs að Hvítárósi 1925 og flutti efnið fram í Skorradal. Líklegast er að það hafi verið dregið á ísi eftir vatninu. Úr þessu efni og öðru tilfallandi byggði Bjarni síðan það hús sem stóð í Hvammi til 1972 og til eru góðar myndir af. Þetta var ágætt hús að þeirri tíma hætti og þokkafullt, enda var Bjarni smiður góður og vanur húsbyggingum frá Reykjavík.
Jón Bjarnason eldri andaðist árið 1926. Hann er grafinn á bak við Fitjakirkju.
Árið 1924 kom austurískur ferðamaður að Hvammi. Hann hafði meðferðis myndavél og tók mynd af Jóni þar sem hann sat fyrir bæjardyrum í Hvammi. Í dyrunum sjást þær óglöggt amma mín (Ingveldur) og Kristrún föðursystir mín. Mér finnst þessi mynd vera gersemi. Myndir af bónda, sem fæddur er á fyrri hluta 19. aldar í sínum hversdagsfötum eru ekki á hverju strái. Ef menn létu taka af sér mynd eða sátu fyrir eins og það var kallað voru menn yfirleitt í sínu fínasta pússi.

Bræðurnir Jón og Sverrir Bjarnasynir gengu í Samvinnuskólann „ fóru til Jónasar“ eins og þá var sagt. Krístrún fór í Kvennasólann. Igveldur andaðist í Hvammi árið 1938. Ég man aðeins óljóst eftir ömmu minni. Var fimm ára gamall þegar hún dó. Hún var jarðsett við hlið tengdaföður sins aftan við Fitjakirkju. Á leiði þeirra var gróðursettur græðlingur af víðihríslu, sem óx utan við bæjardyr í Hvammi. Sú lifir enn. Hríslan heima í Hvammi hefur hins vegar orðið að víkja fyrir síðari tíma gróðri.

Bjarni bjó áfram í Hvammi þó börnin væru farin að heiman og konan dáin. Ég veit að honum leið mjög vel þar og tók mikilli tryggð við staðinn og það held ég að þau hafi öll gert. Í bréfi föður míns til bróður síns mörgum áratugum síðar stendur: „það er mín skoðun að ég hafi mikið þroskast andlega vegna dvalar minnar í Hvammi að því studdi einveran og hið undurfagra umhverfi, sem átti fátt sér líkt……“

Afi var ljúflur og glaðlyndur, gestrisinn dugnaðarmaður. Hann var um hríð oddviti í Skorradalshreppi og lagði mörgum lið með smíðum sínum. Hann var ágætur hagyrðingur og fóru vísur hans víða. Honum þótti vænt um jörðina og dalinn. Þess verður víða vart í kveðskap hans. Við brottförina frá Hvammi kvað hann:

Nú skal flytja breyta um ból
burt frá Hvammi snúa.
Á hann skíni auðnusól,
á alla, sem þar búa

Og þær eru fleiri vísurnar sem lýsa þeim tilfinningum hans meðal annarra þessi sem margir þekkja:

Þegar eg á hauður hníg,
hvergi lengur talinn,
englavængjum á ég flýg,
yfir Skorradalinn.

Árið 1946 seldi Bjarni jörðina Hauki Thors, en hafði áður leigt honum hana einhvern tíma. Það er önnur saga.”

Samantekt: Gunnar Jónsson, kenndur við Krók í Norðurárdal.